Veldu tungumál

Innskráning

  Tölvupóstfang. (e-mail):
  Aðgangsorð:
  Mundu eftir þessu
 
  Gleymdir þú aðgangsorðinu? >>>

Yfirlit

Niðurtalning

9 dagar eftir til næsta móts. Ungverjaland er næsti mótsstaður.

Skiptimarkaðurinn lokar þegar fyrri tímatakan hefst.

Spurningar um leikinn.

Hvað get ég unnið?

Þú getur unnið til fjölda verðlauna í F1 Manager 2006. Akstur Formúlu 1 bíls, ferðir á kappakstur, DVD diska og fjölda annarra vinninga. Samtals 80 vinningar í boði.

Vinninga má skoða á yfirliti yfr vinninga.

  • Skoðaðu verðlaunin
  • Hvað kostar að taka þátt?

    Það kostar aðeins 5.- evrur að taka þátt. Sú greiðsla gildir fyrir allt tímabilið og öll mót.

    Þú getur skráð fleiri en eitt lið, en hvert lið kostar 5.- evrur. Greiðslan tekur strax gildi eftir skráninu og er aðeins hægt að greiða með greiðslukorti.

    Hvernig er vægi ökumanna og liða reiknað út?

    Í upphafi leiksins er öllum liðum, ökumönnum, undirvögnum, vélum og dekkjum gefið ákveðið vægi. Þegar leikurinn fer í gang breytist vægi og verðgildi þessara atriða eftir árangri í mótum.

    Ökumaður verður dýrmætari eftir því sem honum gengur betur. Mesta verðgildi einstaks ökumanns getur aldrei orðið meira en 150 miljónir evra á keppnistímabilinu.

    Vægi keppnisliða og ökumanna er reiknað út að loknu hverju einstöku móti.

    Hvað er deild?

    Hver framkvæmdarstjóri getur sett upp sína eigin deild og boðið vinum og samstarfsmönnum að taka þátt með sér.

    Þetta býður upp á mikla skemmtun og samkeppni milli þeirra sem þekkjast vel.
    Búðu til eigin deild eða taktu þátt í deild hjá einhverjum öðrum.

    Hvað þýðir kerfisstjóri?

    Ef þú hefur búið til eigin deild, þá verður þú sjálfkrafa kerfisstjóri þeirrar deildar. Þú getur stjórnað því hver fær að taka þátt eða vísað úr keppni ef svo ber undir.

    Hvernig fæ ég stig fyrir undirvagn og vél?

    Þú færð sömu stig fyrir vél og undirvagn. Árangur ökumannanna sem þú velur í lið þitt ákvarða stigagjöfina.

    Ef þú velur t.d. Ferrari vél og Michael Schumacher vinnur og Felipe Massa verður annar, þá færðu 45 stig fyrir árangur Schumacher og 35 stig fyrir Massa.

  • Yfirlit yfir stigagjöf
  • Ég hef týnt aðgangsorði mínu

    Ef þú hefur gleymt aðgangsorðinu þá getur þú óskað eftir því hér. Það verður sent á tölvupóstfangið í upplýsingalistanum um þig.

  • Smelltu hérna til að fá lykilorðið
  • Ég get ekki vistað lið mitt

    Ef þú vilt vista lið þitt, þá verður þú að velja tvo ökumenn, undirvagn, vél og dekk. Ef þú hefur ekki lokið öllu valinu þá vistast lið ekki.

    Ég fæ villu meldingu.

    Ef tölvan þín samþykkir ekki kökur (cookies) þá getur kerfisstjórn leiksins ekki vitað að þú hafir skráð þig inn. Ef þú skráir þig t.d. inn, þá gætir þú fengið skilaboð um að þú sért ekki skráður inn.

    Gættu þess að uppsetning í tölvunni þinni samþykki kökur (cookies) svo allt gangi nú snuðrulaust fyrir sig.

    Ég fæ ekki svar við spurningu minni? Hvað nú?

    Vinsamlega skoðaðu hvort þú hefur lesið upplýsingarnar nægilega vel Reglurnar eru einfaldar og skilmerkilegar. Ef þú ert enn í vanda eftir að hafa lestið þær og þáttinn spurningar og svör. Sendu þá tölvupóst á kerfisstjóra leiksins.

  • Farðu á upplýsingasíðu þína